Valur vann Þór 40–35 í Valsheimilinu í kvöld í 5. umferð Olís-deildar karla. Þórsarar unnu upp fjögurra marka forskot Vals í síðari hálfleik en heimamenn reyndust sterkari á lokakaflanum. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en eftir stöðuna 10–10 tóku Valsmenn við sér. Þeir skoruðu sjö af næstu átta mörkum og komust í 17–11. Þórsarar náðu að minnka muninn fyrir hlé en Valur leiddi 22–18 í hálfleik. Valur komst í 24–19 snemma í síðari hálfleik en gestirnir unnu sig aftur inn í leikinn. Eftir að heimamenn höfðu náð fjögurra marka forskoti á ný, 33–29, skoruðu Þórsarar fjögur mörk í röð og jöfnuðu í 33–33. Þór jafnaði aftur í 34–34 þegar tæpar átta mínútur voru eftir. Þá náðu Valsmenn tveggja marka forystu, meðal annars með marki frá markverðinum Björgvini Páli Gústavssyni. Gestirnir minnkuðu muninn í 36–35 en Valur skoraði síðustu fjögur mörk leiksins og tryggði sér sigurinn. Gunnar Róbertsson var markahæstur hjá Val með 11 mörk. Arnór Snær Óskarsson skoraði átta, Bjarni í Selvindi sex og Tjörvi Týr Gíslason fimm. Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með átta mörk. Þórður Tandri Ágústsson skoraði sex en Hákon Ingi Halldórsson og Mikkel Bak Scheumann Jensen fimm hvor. Valur er með sex stig eftir fimm leiki og situr í fjórða sæti deildarinnar. Þór er með fjögur stig eftir jafn marga leiki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.