Fullar sættir í máli Harðar og Stjörnunnar – kvartanir dregnar til baka
Egill Bjarni Friðjónsson

Fullar sættir hafa náðst milli aðalþjálfara Stjörnunnar, Daníel Bergs Grétarssonar og aðstoðarþjálfara Harðar, Braga Rúnars Axelssonar vegna atviks sem varð í tengslum við leik félaganna í 3. flokki karla á Ísafirði um síðustu helgi.

Málið hefur verið talsvert til umfjöllunar undanfarna daga eftir að Stjarnan sendi frá sér yfirlýsingu vegna atvika eftir leik liðanna. Hörður svaraði í kjölfarið með yfirlýsingu þar sem félagið hafnaði þeirri lýsingu sem Stjarnan hafði gefið á atvikunum.

VEITTIST AÐ ÞJÁLFARA STJÖRNUNNAR OG HAFÐI HÓTANIR Í GARÐ HANS

HÖRÐUR SVARAR STJÖRNUNNI – SEGIR FÉLAGIÐ SKÁLDA MÁLSATVIK

Nú virðist málinu hins vegar endanlega lokið. Handknattleiksdeild Harðar og þjálfari Stjörnunnar sendu í kvöld frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kemur fram að þjálfararnir tveir hafi rætt saman og beðið hvor annan afsökunar.

Þá hafa báðir aðilar dregið til baka allar kvartanir vegna málsins og telja ekki tilefni til frekari aðgerða.

Yfirlýsingin í heild sinni:

Sameiginleg yfirlýsing Harðar og þjálfara Stjörnunnar vegna leiks félaganna í 3. flokki karla

Aðalþjálfari Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari Harðar hafa náð fullum sáttum vegna atvika sem urðu í leik liðanna á Ísafirði og eftir hann.

Þeir hafa rætt saman í bróðerni og beðið hvor annan afsökunar. Þeir eru sammála um að allir hefðu átt að vanda samskipti sín betur og þjálfarar eigi öllum stundum að vera fyrirmyndir ungra iðkenda.

Orð féllu í hita leiksins og eru aðilar sammála um að þau voru misskilin og er það miður.

Báðir aðilar hafa jafnframt dregið til baka allar kvartanir sínar vegna málsins og telja ekki tilefni til frekari aðgerða af neinu tagi.

Áfram handboltinn.

Ísafirði og Garðabæ, 3. október 2026
Handknattleiksdeild Harðar
þjálfari Stjörnunnar

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top