Hinn 16 ára gamli Brynjar Narfi Arndal, leikmaður FH, heldur áfram að vekja athygli utan landsteinanna eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Handboltamiðillinn RTHandball fjallar um Narfa á samfélagsmiðlum í dag undir yfirskriftinni „Iceland’s next big thing?“ og segir nokkur af stærstu félögum Evrópu vera farin að fylgjast grannt með þróun hans. Þar eru sérstaklega nefnd Barcelona, Gummersbach, Flensburg-Handewitt og Industria Kielce, sem öll séu sögð hafa hinn unga leikstjórnanda undir smásjánni. „Remember the name: Narfi Arndal,“ skrifar RTHandball og bendir á að hinn 16 ára gamli miðjumaður sé þegar farinn að vekja verulega athygli hjá stórliðum Evrópu. Narfi hefur heldur betur látið að sér kveða með FH að undanförnu. Hann skoraði meðal annars átta mörk gegn Bidasoa Irun á Spáni í Evrópukeppninni í vikunni og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í stóru hlutverki hjá Hafnarfjarðarliðinu. Handkastið hefur áður greint frá áhuga Gummersbach á Narfa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.