FH töpuðu gegn Bidasoa Irun á Spáni
Sævar Jónasson

FH mætti spænska liðinu CD Bidasoa Irun í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. FH-ingar þurftu að sætta sig við tveggja marka tap, 39–37. Bidasoa leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 18–14.

Brynj­ar Narfi Arndal fór fyrir markaskorun FH og skoraði sjö mörk og Ágúst Guðmundsson skoraði sex.

Hjá Bidasoa var Esteban Joaquin Salinas Munoz markahæstur með níu mörk.

FH byrjaði ágætlega og staðan var jöfn, 5–5, þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar. Bidasoa náði þó yfirhöndinni undir lok fyrri hálfleiks og fór með 18–14 forskot inn í leikhlé.

Spænska liðið hélt áfram að hafa frumkvæðið eftir hlé og var með fimm marka forskot, 25–20, þegar tæpar 23 mínútur voru eftir. Munurinn varð svo mestur sex mörk, 36–30, þegar um stundarfjórðungur var eftir.

FH-ingar gáfust þó ekki upp og söxuðu á forskotið á lokakaflanum. Bidasoa var 39–35 yfir þegar tæpar tvær mínútur voru eftir og FH minnkaði muninn í tvö mörk, 39–37, undir lokin. Lengra komst liðið þó ekki og Bidasoa tryggði sér sigur í fyrsta leik sínum í riðlinum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top