Handknattleikssamband Íslands hefur sett nýjar reglur um myndbandsdómgæslu í íslenskum handbolta en reglurnar tóku gildi í gær, 28. september. Myndbandsdómgæsla verður notuð í leikjum í Olís-deild karla og kvenna og hefst strax á fimmtudag þegar 4. og 5.umferðin í Olís-deildum karla og kvenna hefst. ,,Myndbandsdómgæslan er hugsuð sem hjálpartæki fyrir dómara þegar verulegur vafi leikur á réttri ákvörðun eða þegar dómararnir hafa ekki séð atvik nægilega vel. Aðeins á að breyta ákvörðun á grundvelli myndbands þegar upptakan gefur skýrar og ótvíræðar sjónrænar sannanir. Dómarar geta þar nýtt sér upptökur úr Spideo-kerfinu eða frá öðrum rétthöfum, svo lengi sem upptökurnar eru aðgengilegar við leikinn," segir í bréfi sem félögin í landinu fengu frá HSÍ. Í reglugerð HSÍ eru tilgreind ellefu tilvik þar sem heimilt er að grípa til myndbandsdómgæslu. Athygli vekur að dómarar geta einnig leiðrétt annað atvik sem kemur í ljós þegar þeir fara yfir upptökuna. Komi í ljós við myndbandsskoðun að önnur röng ákvörðun hafi verið tekin eða brot átt sér stað án þess að dæmt hafi verið á það, eiga dómarar að leiðrétta ákvörðunina. Það á þó aðeins við um atvik sem gerðist á sama tíma og atvikið sem verið er að skoða eða strax á undan því. Ekki verður þó hægt að fara langt aftur í leikinn til að endurskoða atvik. Að meginreglu þarf ákvörðun um myndbandsskoðun að koma í beinum tengslum við atvikið og ekki má grípa til hennar eftir að boltinn hefur skipt tvisvar um lið frá því að atvikið átti sér stað. Það verður ekki á valdi leikmanna eða þjálfara að krefjast þess að dómarar fari í skjáinn. Samkvæmt reglunum geta leikmenn og liðsfulltrúar ekki krafist myndbandsdómgæslu. Krefjist leikmaður eða liðsfulltrúi þess með ágengum hætti eða sýni sjálfur VR-merkið gagnvart dómara getur það leitt til stighækkandi refsingar. Þá teljast leikrænir tilburðir eða ýkt viðbrögð sem verða til þess að farið er í myndbandsskoðun til ódrengilegrar hegðunar og skal refsa fyrir slíkt samkvæmt leikreglum IHF. Þegar myndbandsskoðun fer fram stöðva dómarar leiktímann og sýna sérstakt „VR“-merki. Að skoðun lokinni eiga þeir síðan að tilkynna lokaákvörðun sína með skýrum hætti til beggja liða og ritara- og tímavarðarborðs. Ellefu mismunandi tilvik


Geta leiðrétt annað brot sem kemur í ljós
Leikmenn geta ekki krafist myndbandsskoðunar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.