Gyða Kristín Ásgeirsdóttir - wFH (Brynja T.)
Hægri hornamaðurinn í liði FH í Grill66-deild kvenna, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir hefur framlengt samning sinn við FH til loka tímabils 2028. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. Gyða Kristín sem er uppalin í FH hefur undanfarin ár verið í yngri landsliðum Íslands. ,,Hún er virkilega efnilegur leikmaður sem við hlökkum til að sjá halda áfram að blómstra í FH-treyjunni næstu árin,” segir í tilkynningunni frá FH. Gyða Kristín hefur skorað 27 mörk í níu leikjum fyrir FH í Grill66-deildinni í vetur en liðið situr í 4.sæti deildarinnar og er auk þess komið í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins þar sem liðið mætir Val.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.