Planið er að flytja heim í sumar

Við heyrðum aðeins í handknattleiksmanninum Degi Sverri Kristjánssyni, sem leikið hefur í Svíþjóð undanfarin 3 ár. Fyrst með Karlskrona í 2 ár og svo núna síðasta árið með Vinslövs HK í næstefstu deild.

Dagur Sverrir er fæddur árið 2000 og leikur sem örfhent skytta. Ólst hann upp í Breiðholtinu og lék með ÍR alla tíð áður en hann fór út til Svíþjóðar. Tímabilið 2022-2023 var hans síðasta tímabil áður en hann flutti búferlum til Svíþjóðar og átti hann frábært tímabil í Olís deildinni þar sem hann skoraði 115 mörk í 22 leikjum.

Gefum Degi orðið og leyfum honum að segja aðeins frá árunum þrem í Svíaríki og hvað sé í pípunum framundan hjá honum og fjölskyldunni.

"Ég flutti út til Svíþjóðar 2023 með kærustunni til að spila með HF Karlskrona sem voru þá að koma upp í efstu deild. Handbollsligan er hörku deild með mikið af góðum liðum og leikmönnum. Við vorum í íbúð í miðbænum og leið okkur mjög vel 2 árin í Karlskrona. Mjög flott aðstaða og professional umhverfi hjá liðinu. Ný höll og í kringum 1500-2000 manns á öllum leikjum. Það var líka geggjað að hafa Óla, Ogga og Phil þarna. Ég var nýútskrifaður með BS í viðskiptafræði þegar ég flutti út og er búinn að vera í 50% vinnu í fjármáladeild með handboltanum"

"Fyrsta árið okkar enduðum við í neðra playoffsi en vinnum það 3-0. Og seinna árið enduðum við í 4. sæti í deildinni sem er held ég besti árangur í sögu félagsins. Ég var nr. 2 í hægri skyttunni allan tímann og nr. 2 í horninu líka fyrsta tímabilið þar sem annar hornamaðurinn meiddist snemma á tímabilinu. Ég spilaði mikið en sat líka mikið á bekknum. Ég lenti í erfiðum axlarmeiðslum fyrsta tímabilið og síðan fékk ég hjartabólgur á öðru tímabili sem var ömurlegt og setti smá strik í reikninginn þegar kom að spiltíma"

"Eftir það var planið að flytja heim en það var haft samband við mig frá Vinslöv HK en þeir eru í næstefstu deild og þeir vildu mikið fá mig. Þeir enduðu í 3. sæti árið áður og markmiðið var að komast upp núna í ár og spila í efstu deild á næsta ári. Þannig að ég ákvað að prófa þetta og flutti til Kristianstad með kærustunni minni og dóttur sem fæddist í apríl á síðasta ári. Þar var tekið vel á móti okkur af Óla Guðmunds og Tinnu en heima hjá þeim eru svokallaðar höfuðstöðvar Íslendinga í Kristianstad. En Vinslöv sem er 20mín frá Kristianstad er lítill bær þar sem er mikill áhugi fyrir handbolta og vel mætt á leiki. Allsvenskan er áhugaverð deild minna um taktík og mjög mikið maður á mann og mikið spilað 7-6 og framliggjandi varnir. Það ævintýri er ekki búið að ganga nógu vel, þjálfarinn sem fékk mig var rekinn í byrjun tímabils og sá sem kom í staðinn er ekki mikið að rótera liðinu. Hinn örvhenti leikmaðurinn sem kom frá Runar í Noregi fyrir tímabilið spilar flestar mínútur. Þetta er búið að vera frábær lífsreynsla en maður er í þessu til að spila þannig planið núna er að flytja heim í sumar"

Það verður áhugavert að sjá hvaða félagi Dagur Sverrir endar. Og eins frábært að fá hann í Olís deildina á nýjan leik. Það er nokkuð ljóst að hann fær án efa nokkur símtöl eftir þessa frétt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top