Valur byrjar árið 2026 á flugeldasýningu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

wValur (Egill Bjarni Friðjónsson)

Fyrsta leik 12.umferðar Olís deildar kvenna var að ljúka þegar Fram fékk Val í heimsókn upp í Úlfarsárdal. Gestirnir á Hlíðrarenda voru fljótar að ná góðri forystu strax í byrjun leiks en Hafdís Renötudóttir fór á kostum og varði fjórtán bolta í dag. Staðan í hálfleik var 10-19 fyrir Val.

Valskonur héldu bara áfram í þeim síðari og var sigurinn aldrei í hættu og lokatölur 19-30 fyrir Val sem byrja árið 2026 gríðarlega sterkt og eru á toppi deildarinnar með 20.stig.

Atkvæðamest í liði gestanna var Elísa Elíasdóttir með fimm mörk. Lovísa Thompsen fylgdi henni á eftir með fjögur mörk.

Atkvæðamest í liði Fram var Hulda Dagsdóttir með fjögur mörk. Alfa Brá Oddsdóttir kom á eftir Huldu með þrjú mörk skoruð.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 17
Scroll to Top