Elín Rósa skoraði þrjú í sigri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Rósa Magnúsdóttir (Kristinn Steinn Traustason)

Íslendingaliðið í þýsku úrvalsdeild kvenna, Blomberg-Lippe vann sinn fjórða sigur í röð í deildinni þegar liðið lagði Sachsen Zwickau að velli 32-28 í dag.

Þrjár íslenskar landsliðskonur leika með liðinu en Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk í sigrinum í dag en Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir komust ekki á blað í leiknum.

Blomberg-Lippe er á toppi deildarinnar með 24 stig en Borussia Dortmund er með jafn mörg stig á toppi deildarinnar. Borussia Dortmund hefur hinsvegar einungis leikið 13 leiki en Blomberg-Lippe 14.

Blomberg-Lippe hefur unnið tólf af fjórtán deildarleikjum sínum í vetur og tapað tveimur. Næsti leikur Blomberg Lippe er gegn Neckarsulmer á miðvikudaginn en Neckarsulmer er í 6.sæti deildarinnar með sex stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top