Hinrik Hugi Heiðarsson - HBH (Eyjólfur Garðarsson)
Í dag mættust HBH og Haukar 2 í Eyjum í Grill 66 deild karla.
Hauka menn byrjuðu betur og voru sterkari fyrstu 10 mínúturnar eða svo. Þá tóku heimamenn í HBH við sér og komust í 9-6. Eftir það var leikurinn frekar jafn en Haukar skrefinu á undan. Hálfleikstölur voru 14-16.
Eftir korters leik í seinni hálfleik var staðan 22-24 fyrir Hauka. HBH reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn en náðu bara að minnka í 1 mark. Nær komust þeir ekki. Síðustu 10 mínúturnar keyrðu svo Hauka menn yfir Eyjapeyjana og sigruðu 25-33.
Hjá HBH var Hinrik Hugi Heiðarsson markahæstur með 7 mörk. Markvarslan skilaði þeim 7 boltum.
Hjá Haukum 2 var Ari Dignus með 15 bolta varða. Jón Karl Einarsson var markahæstur og setti 9 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.