
Björgvin Páll Gústavsson (Baldur Þorgilsson)
Einungis einn leikmaður íslenska landsliðið leikur í Olís-deild karla, Björgvin Páll Gústavsson en á sama tíma er einungis einn leikmaður íslenska landsliðshópsins, Sigvaldi Björn Guðjónsson sem aldrei hefur leikið í meistaraflokki á Íslandi. Handkastið hefur tekið saman hvenær strákarnir okkar í íslenska landsliðinu léku síðast á Íslandi. Olís-deild karla fer aftur af stað strax á miðvikudaginn þegar 16. umferðin í Olís-deild karla hefst. Einungis sjö umferðir eru eftir af deildinni áður en farið verður í úrslitakeppnina sem verður af mörgum talin ein sú jafnasta hingað til en mörg félög gera tilkall til að landa Íslandsmeistaratitlinum. Þá verður baráttan á botni deildarinnar einnig jöfn. Áður en úrslitakeppnin hefst fer síðan fram Final4 helgin í Powerade-bikarnum 26.-28. febrúar. Það er ljóst að í Olís-deildinni í ár eru framtíðar leikmenn íslenska landsliðsins sem verður áfram í baráttu á stórmótum næstu ár og áratugi. Hér má sjá hvenær strákarnir okkar léku síðast í meistaraflokki á Íslandi: Björgvin Páll Gústavsson 2025/2026 - Með Val Viktor Gísli Hallgrímsson 2018/2019 - Með Fram Aðrir leikmenn: Andri Már Rúnarsson 2022/2023 - Haukum Arnar Freyr Arnarsson 2015/2016 - Með Fram Bjarki Már Elísson 2012/2013 - Með HK Einar Þorsteinn Ólafsson 2021/2022 - Með Val Elliði Snær Viðarsson 2019/2022 - Með ÍBV Elvar Ásgeirsson 2018/2019 - Með Aftureldingu Elvar Örn Jónsson 2018/2019 - Með Selfossi Gísli Þorgeir Kristjánsson 2017/2018 - Með FH Haukur Þrastarsson 2019/2020 - Með Selfossi Janus Daði Smárason 20216/2017 - Með Haukum Orri Freyr Þorkelsson 2020/2021 - Með Haukum Óðinn Þór Ríkharðsson 2021/2022 - Með KA Ómar Ingi Magnússon 2015/2016 - Með Val Sigvaldi Björn Guðjónsson - Aldrei leikið á Íslandi Teitur Örn Einarsson 2017/2018 - Með Selfossi Viggó Kristjánsson 2015/2016 - Með Gróttu Ýmir Örn Gíslason 2019/2020 - Með Val Þorsteinn Leó Gunnarsson 2023/2024 - Með Aftureldingu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.