
Yanis Lenne (Sebastian Elias Uth / Ritzau Scanpix / AFP)
Í hádeginu í gær var dregið í umspilsleiki fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Ljóst er hvaða sex Evrópuþjóðir hafa nú þegar unnið sér sæti inn á Evrópumótinu en það eru þær sex þjóðir sem enduðu í sex efstu sætunum á Evrópumótinu. Þjóðverjar eru gestgjafar mótsins og Danmörk eru ríkjandi heimsmeistarar. Þær þjóðir leika einmitt til úrslita á Evrópumótinu í dag klukkan 17:00. Ísland, Króatía, Svíþjóð og Portúgal hafa síðan einnig unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu eftir góðan árangur á Evrópumótinu. Norður Makedónía mætir sigurvegurunum úr viðureign Úkraínu og Slóvakíu. Sigurvegarinn úr viðureign Bosníu og Kosóvó mætir Færeyjum. Tékkland og Frakkland mætast og þá mætast Sviss og Ítalía. Sigurvegarnir úr viðureign Finnlands og Svartfjallalands mæta Slóveníu og þá mætast sigurvegarnir úr viðureign Serbíu og Litháens, liði Ungverjalands. Spánn mætir annað hvort Georgíu eða Ísrael. Holland mætir annað hvort Grikklandi eða Belgíu. Noregur mætir annað hvort Tyrklandi eða Rúmeníu og að lokum mætir Austurríki sigurvegaranum úr viðureign Póllands og Lettlands.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.