Valur tryggði síðasta sætið í undanúrslitin
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Tinna Jensdóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

FH tók á móti Val í síðasta leik 8 liða úrslita í Powerade bikarnum í Kaplakrika í kvöld.

Fyrirfram var búist við erfiðum leik fyrir heimakonur sem leika í Grill 66 deildinni meðan Valur er á toppi Olís deildar kvenna.

Heimakonur stóðu í Valskonum í upphafi leiks en þegar líða fór á fyrri hálfleikinn sýndu Valur mátt sinn og meginn og leiddu í hálfleik með fimm mörkum 13-18.

Valur rúllaði vel á liði sínu í síðari hálfleik og fengu margir leikmenn að spreyta sig. Það kom þó ekki að sök að þær bættu í forskotið og lokatölur voru tíu marka sigur Valskvenna, 21-31 og sætið í úrslitahelginni tryggt.

Thelma Dögg Einarsdóttir var markahæst í liði FH í kvöld með 7 mörk en hjá Val var Mariam Eradze markahæst með 7 mörk.

Valur er þar með síðasta liðið til að tryggja sér sæti í Final 4 þetta árið og verður dregið í undanúrslit bæði í karla og kvennaflokki þann 6.febrúar næstkomandi.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top