Franska deildin tekur upp úrslitakeppni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jacob Holm (Alexandre Martins / DPPI via AFP)

Franska úrvalsdeildin hefur tekið ákvörðun að eftir 42 ár þar sem franskir meistarar hafa verið krýndir eftir deildarkeppni verður úrslitakeppni eftir að deildarkeppninni lýkur frá og með tímabilinu 2026/2027.

Ákveðið hefur verið að átta efstu liðin eftir deildarkeppni í frönsku úrvalsdeildinni fari í úrslitakeppni. Fjögur efstu lið deildarinnar berjast um franska meistaratitilinn en undanúrslitin verða leikin heima og heiman. Í kjölfarið verður síðan hreinn úrslitaleikur á hlutlausum velli um franska titilinn.

Sæti fimm til átta leika um eitt laust sæti í Evrópukeppninni.

,,Þetta mun örugglega bæta mikilli spennu við lokakafla tímabilsins, sérstaklega þar sem einn leikur á hlutlausum velli mun ráða úrslitum," sagði danski handboltaspekingurinn, Rasmus Boysen á Facebook-síðu sinni en hann vakti athygli á þessari breytingu í gærkvöldi.

Einn íslenskur leikmaður leikur í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Sveinn Jóhannsson leikur með Chambéry Savoie en liðið er um þessar mundir í 5.sæti deildarinnar.

PSG hefur unnið frönsku deildina ellefu tímabil í röð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top