Endurkoma Dags Gauta seinkar
Skapti Hallgrímsson Akureyri.net

Vinstri hornamaðurinn, Dagur Gautason gekk í raðir uppeldisfélags síns, KA nú um áramótin eftir dvöl erlendis síðustu ár hjá Arendal í Noregi og Montpellier í Frakklandi.

KA leikur sinn fyrsta leik á árinu gegn ÍR í Skógarselinu í kvöld í 16.umferð Olís-deildar karla. Dagur Gautason verður ekki með KA í leiknum en hann sneri sig illa á ökkla á æfingu liðsins á mánudaginn. Þetta staðfesti Dagur í samtali við Handkastið. Endurkoma Dags seinkar því með KA-liðinu en óvíst er hversu lengi Dagur verður frá.

Þrír leikir fara fram í Olís-deild karla í kvöld. ÍBV og Selfoss eigast við í Vestmannaeyjum klukkan 18:00 og HK mætir FH á sama tíma. Leikur ÍR og KA hefst síðan klukkan 18:30.

Á morgun lýkur síðan umferðinni með þremur leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top