Hefur aukin pressa fyrir norðan neikvæð áhrif á KA?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarni Ófeigur Valdimarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Olís deild karla fer af stað í kvöld eftir 51 daga pásu en síðast var leikið í Olís-deildinni um miðjan desember á síðasta ári.

Þrír leikir fara fram í Olís-deildinni í kvöld og 16.umferðin lýkur síðan annað kvöld með þremur leikjum. Stórleikur umferðarinnar að mati Handkastsins er leikur Vals og Hauka í N1-höllinni annað kvöld klukkan 19:30 en sá leikur er í beinni í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Handkastið heyrði í einum af sérfræðingum sínum í hlaðvarpinu, Einari Inga Hrafnssyni og spurði hann aðeins út í það hverju hann er spenntastur fyrir að sjá eftir langa pásu í Olís-deildinni.

,,Það er loksins komið að þessu, sex vikna pása og við byrjum heldur betur af krafti. Ég er spenntastur fyrir mörgu þetta vorið. En kannski hvað mest hvernig nýju janúarpúslin fyrir norðan koma inn í KA liðið, munu þeir Dagur Gauta og Ágúst Elí tryggja KA heimavallarétt og jafnvel bikartitil. Maður skynjar meiri væntingar fyrir norðan með þessum kaupum, en spurningin er hvort þessi aukna pressa muni hafa neikvæð áhrif á heildarframmistöðu liðsins. Bjarni Ófeigur var auðvitað stórkostlegur fyrir áramót, en mun hann halda þessum háu gæðum áfram inní vorið? Þannig ég er spenntastur fyrir vegferð KA, og svo er ég líka mjög spenntur að sjá hvort Fram losi handbremsuna og hvort Rúnar Kára eigi einn lokadans inni. Það er spennandi vor framundan," sagði Einar Ingi Hrafnsson sérfræðingur Handkastsins.

Leikirnir í 16.umferð Olís-deildar karla:

Í kvöld:
18:00 ÍBV - Selfoss
18:00 HK - FH
18:30 ÍR - KA

Á morgun:
18:30 Stjarnan - Þór
19:30 Valur - Haukar
20:15 Fram - Afturelding

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top