Andri Snær Stefánsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Olís-deild karla fer af stað aftur í kvöld efir 51 daga pásu en síðast var leikið í Olís-deildinni 15. desember á síðasta ári. Síðan þá hefur ýmislegt breyst en það lið sem hefur breyst hvað mest á jákvæðan hátt myndi maður halda, er lið KA sem situr í 5.sæti Olís-deildarinnar með 18 stig. KA hefur fengið til sín tvo leikmenn úr atvinnumennsku og einn ungan og efnilegan leikmann frá FH. Um er að ræða markvörðinn, Ágúst Elí Björgvinsson sem gekk í raðir KA frá Ribe-Esbjerg, Dag Gautason frá Arendal og Ara Val Atlason sem kom frá FH. KA mætir ÍR í Skógarselinu í kvöld klukkan 18:30. Handkastið heyrði í Andra Snæ Stefánsysni þjálfara KA og spurði hann út í stöðuna á KA liðinu. ,,Það eru allir klárir og tilbúnir í slaginn og spenntir að spila. Við erum búnir að nota janúar vel og verður gaman að keyra mótið aftur í gang. Síðustu vikur gafst tími til að æfa af miklum krafti og við ætlum að halda áfram að bæta okkur. Við erum búnir að þétta raðirnar sem styrkir auðvitað liðið," sagði Andri sem gerir ráð fyrir hörkuleik gegn botnliði ÍR í kvöld. Það má þó hafa það í huga að Handkastið heyrði í Andra Snæ fyrir æfingu liðsins á mánudaginn en á þeirri æfingu meiddist Dagur Gautason á ökkla. ,,Það verður spilað þétt næstu vikur og við byrjum gegn spræku ÍR liði sem er áhugavert verkefni. Þeir eru virkilega vel þjálfaðir hjá Bjarna vini mínum og Baldur er á leið í atvinnumennsku sem segir ýmislegt um starfið í Breiðholti. Ég á von á hröðum og flottum handbolta í kvöl og vonandi verður góð mæting og fjör í þessu," sagði Andri Snær í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.