Góð byrjun ÍR dugði ekki til gegn KA
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Baldur Fritz Bjarnason (Egill Bjarni Friðjónsson)

ÍR tóku á móti KA í Skógarselinu í kvöld í lokaleik dagsins í 16.umferð Olís deildar karla.

Heimamenn voru fyrir leikinn í botnsæti deildinnar í leit að stigum meðan KA voru í sjötta sæti deildinnar.

Akureyringar voru virkir á markaðnum í janúar og komu meðal annars Ágúst Elí Björgvinsson og Dagur Gautason til liðs við þá í glugganum. Dagur var þó ekki í leikmanna hóp KA í kvöld vegna meiðsla.

ÍR byrjaði leikinn af miklum krafti og komust í 4-0 og var Baldur Fritz Bjarnason allt í öllu í sóknarleik þeirra. KA náði þó að vinna sig inn í leikinn og voru komnir yfir 6-7 eftir um rúmlega 10 mínútna leik. Þeir héldu áfram að bæta í forskotið eftir sem leið á fyrri hálfleikinn og leiddu í hálfleik 13-18.

Andri Snær hefur farið vel yfir málin í hálfleik því KA byrjaði síðari hálfleikinn mun betur en þann fyrri og voru komnir í átta marka forskot eftir um 10 mínútna leik í síðari hálfleik. Norðanmenn slógu aðeins af bensíngöfinni undir lok leiksins og unnu að lokum sex marka sigur, 31-37.

Baldur Fritz Bjarnason var langmarkahæstur í liði ÍR með 15 mörk í kvöld en hjá KA var Bjarni Ófeigur Valdimarsson markahæstur með 7 mörk.

Ágúst Elí Björgvinsson varði 8 skot í marki KA og verður gaman að fylgjast með honum í Olís deildinni í vetur.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top