
Halldór Jóhann Sigfússon (Sævar Jónasson)
Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK þurfti að sætta sig við þriggja marka tap gegn FH á heimavelli í 16.umferð Olís-deildar karla. FH leiddi í hálfleik 16-14 en lokatölur 29-32 FH í vil. Halldór Jóhann var ánægður með margt í leik HK í leiknum en fannst ósanngirni í ákveðnum ákvörðunartöku hjá dómaraparinu í leiknum og fannst dýrt þegar honum fannst brotið á Sigurði Jefferson í upplögðu marktækifæri en ekkert dæmt og FH-ingar fóru upp í staðin og komust í tveggja marka forystu. Viðtalið við Halldór Jóhann er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.