Andri Erlingsson - ÍBV (Sævar Jónasson)
ÍBV tók á móti Selfossi í fyrsta leik 16.umferðar Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Hákon Daði Styrmisson var að leika sinn fyrsta leik fyrir ÍBV en hann gekk til liðsins í janúar eftir nokkra ára dvöl í atvinnumennsku erlendis. ÍBV náði strax góðu forskoti í leikum og voru komnir með fimm marka forskot um miðbik fyrri hálfleiks og var Petar Jokanovic frábær í marki Eyjamanna í kvöld. Þeir héldu áfram að bæta í forskotið eftir sem leið á hálfleikinn og leiddu með sjö mörkum þegar liðin gengu inn til búningsklefa, 18-11. Í síðari hálfleik var sama upp á teningnum og í fyrri hálfleik þar sem Eyjamenn höfðu öll völd á vellinum og Selfyssingar náðu aldrei að gera atlögu að forskoti þeirra. Leiknum lauk með 12 marka sigri ÍBV, 40-28. Sveinn José Rivera var markahæstur hjá heimamönnum með 7 mörk en hjá Selfyssingum voru þeir Tryggvi Sigurberg Traustason og Gunnar Kári Bragason markahæstir með 5 mörk. Hákon Daði skoraði 6 mörk í heimakomu sinni og ljóst að hann mun styrkja Eyjaliðið gífurlega sem léku án margra sterkra manna í kvöld en gleðitíðindi voru þó að Elís Rafn Aðalsteinsson var kominn aftur í liðið eftir meiðsli sem hann varð fyrir seint á síðasta ári á unglingalandsliðsæfingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.