Þetta er engin fegurðarkeppni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigursteinn Arndal (Egill Bjarni Friðjónsson)

Sigursteinn Arndal þjálfari FH gat leyft sér að fá sér vatn úr Gatorade brúsanum sínum og brosað eftir þriggja marka sigur liðsins gegn HK í Kórnum í kvöld í 16.umferð Olís-deildar karla. FH leiddi í hálfleik 16-14 og vann að lokum 32-29.

Steini sagði í viðtali við Handkastið að hann hafi verið ánægður með margt í þeirra leik en margt sem þyrfti að bæta og slípa saman eftir langa pásu. Hann nefndi að fyrstu leikir eftir langt frí væri engin fegurðarkeppni heldur þyrfti að leggja inn ákveðna vinnu og honum fannst FH liðið gera það nokkuð vel í leiknum í kvöld.

,,Mér fannst vanta upp á ákveðnar tímasetningar og ákveðin gæði í árásunum okkar en við vorum líka að mæta góðu HK-liði sem vildi mikið og lagði sig alla fram. Þess vegna er ég ánægður að við höfðum mætt þeim í þeirri vinnu og unnið þennan leik," sagði Sigursteinn.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top