Andri Snær Stefánsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Andri Snær Stefánsson þjálfari KA gat fagnað með sínu liði í kvöld eftir sigur á ÍR í 16.umferð Olís-deildar karla. Lokatölur 37-31 KA í vil en leikurinn fór fram í Skógarselinu í Breiðholtinu. ÍR hóf leikinn betur og komst strax í 4-0 en KA vann sig hægt og bítandi inn í leikinn. ,,Ég er gríðarlega ánægður og frábært að byrja aftur og gott að vinna. Við vorum lengi í gang og við vissum að það gæti tekið smá tíma að fara í gang eftir langa pásu en sem betur fer tók það ekki of langan tíma. Byrjunin var ekki góð og við lendum 0-4 undir og við vorum lengi að ná stjórn á okkar hlutum en eftir það fannst mér við mjög flottir og í heildina var þetta góður sigur," sagði Andri Snær í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,ÍR eru drullu flottir, þeir eru hraðir og ef maður gefur þeim smá bragð af sjálfstrausti þá eru þeir ógeðslega góðir og við vissum það. Ég var ekkert stressaður en við vorum fljótir að ná tökum á því sem við vildum gera og fengum þá auðveld hraðaupphlaupsmörk og mér fannst við fljótir að ná hrollinum úr okkur.” KA fær Fram í heimsókn í KA-heimilið næstkomandi sunnudag klukkan 17:00 í fyrsta heimaleik sínum á þessu ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.