
ísak Logi Einarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Stjarnan hefur orðið fyrir enn einu áfallinu en Handkastið greindi frá því á dögunum að Pétur Árni Hauksson leiki ekki meira með liðinu á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband. Nú hefur bæst á meiðslalista Stjörnunnar sem hefur verið langur í vetur. Ísak Logi Einarsson verður frá keppni næstu vikurnar en hann er ristarbrotinn en þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Handkastið. Stjarnan fær nýliða Þórs í heimsókn í 16.umferð Olís-deildar karla í kvöld 18:30 en þrír leikir eru á dagskrá Olís-deildar karla. Ísak Logi bætist þar með á meiðslalista Stjörnunnar en þar eru Sveinn Andri Sveinsson, Tandri Már Konráðsson og Egill Magnússon sem ekkert hafa leikið með Stjörnunni í vetur. Þá meiddist Jón Ásgeir Eyjólfsson á hné fyrir áramót og óvíst er með þátttöku hans í leiknum í kvöld. Pétur Árni Hauksson er síðan að sjálfsögðu líka á listanum eftir meiðslin sem hann hlaut í síðasta mánuði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.