Harðverjar með sigur í Eyjum í margfrestuðum leik
Hörður Facebook)

Í dag mættust HBH og Hörður í lokaleik Grill 66 deildarinnar en spilað var í Eyjum. Þessi leikur var marg frestaður en loksins tókst að finna dag- og tímasetningu á leiknum.

Harðverjar mættu mun ákveðnari og sterkari til leiks og eftir korters leik var staðan 9-11 fyrir gestina frá Ísafirði. Áfram héldu Harðverjar í forskotið og var munurinn yfirleitt 2-4 mörk út allan fyrri hálfleikinn. Þeir einfaldlega einu skrefi framar. Staðan í hálfleik var 17-20 fyrir gestina.

Eyjapeyjarnir mættu virkilega grimmir til leiks í seinni hálfleik og voru fljótir að jafna í 20-20 eftir nokkrar mínútna leik. Leikurinn var jafn fyrsta korterið í seinni hálfleik en þá fór að skilja að á milli liðanna og Harðverjar náðu aftur upp forskotinu sem þeir höfðu í fyrri hálfleiknum. Fór það svo að lokatölur leiksins urðu 31-35 fyrir Ísfirðingana í Herði.

Hjá HBH var Hinrik Hugi Heiðarsson markahæstur með 8 mörk. Markvarslan hjá Helga Þór og Gabríel Ara skilaði 14 boltum.

Hjá Herði var Jose Neto markahæstur með 9 mörk. Stefán Freyr og Hermann Alexander vörðu 12 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top