Stymmi spáir í spilin: 16. umferð Olísdeildar kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi spáir í spilin (

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 16.umferð fari í Olís deild kvenna.

Fram – Selfoss (Fimmtudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Fram

Fram unnu góðan sigur á ÍR í vikunni og eru komnar í undanúrslit í bikarkeppninni meðan lítið gengur hjá Selfoss sem tapaði í síðustu umferð. Fram munu vinna þennan leik örugglega og róðurinn fer að þyngjast hjá Selfyssingum.

Valur – Haukar (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: Valur

Stórleikur umferðinnar en í gegnum árin eru Haukar eina liðið sem hefur náð að velgja val undir uggum. Það mun þó ekki gerast á laugardaginn og Valur heldur toppsætinu með sigri á Haukum.

Stjarnan – ÍR (Laugardagur 15:30)  /  Sigurvegari: Stjarnan

Stjarnan sér eflaust tækifæri til að krækja í stig gegn ÍR sem hefur átt erfitt uppdráttar eftir áramót ef frá er talinn sigur liðsins á Selfoss. Ég ætla að spá óvæntum úrslitum í Garðabænum á laugardaginn og segja að heimakonur í Stjörnunni vinni ÍR.

KA/Þór – ÍBV(Sunnudagur 14:30)  /  Sigurvegari: ÍBV

ÍBV fer í heimsókn á Akureyri eftir að hafa tapað óvænt þar í fyrstu umferðinni. KA/Þór eru komnar í undanúrslit bikarkeppninar eftir sigur á Gróttu sem sló einmitt ÍBV óvænt út úr bikarnum fyrr í vetur. Eyjastelpur fara norður á sunnudaginn og vinna þetta örugglega.

15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top