Stymmi spáir í spilin: 9. umferð Olísdeildar kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi spáir í spilin (

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 9.umferð fari í Olís deild kvenna.

Fram – Haukar (Þriðjudagur 18:30)  /  Sigurvegari: Haukar

Liðin í 5 og 6 sæti deildinnar að mætast. Bæði lið eru eflaust ósátt við stigastöfnun á tímabilinu og þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að komast ofar í deildinni. Haukarnir áttu dapra frammistöðu gegn Malaga um helgina í Evrópukeppninni og er þessi leikur snemma í vikunni sökum ferðalags þeirra til Spánar. Ég held að Haukar þjappi sér saman fyrir ferðalagið og vinni þennan leik.

Valur – ÍR (Miðvikudagur 19:30)  /  Sigurvegari: Valur

Toppslagur umferðinnar þar sem liðin í fyrsta og öðru sæti mætast. Valur hefur haft tak á ÍR undanfarin ár og það virðist henta ÍR einstaklega illa að mæta Val. Ég held það verði engin breyting á því á miðvikudaginn og Valur vinni þennan leik örugglega.

KA/Þór – Selfoss (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: KA/Þór

Liðin mættust í bikarkeppninni um daginn þar sem KA/Þór vann öruggan sigur. Selfoss hefur verið í brasi undanfarið og ég held að KA/Þór vinni þennan leik líkt og í bikarkeppninni nokkuð örugglega.

Stjarnan – ÍBV (Laugardagur 16:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

Stjarnan í leit að sínum fyrsta sigri. ÍBV búnar að vera á mikilli siglingu eftir að hafa dottið óvænt út úr bikarkeppninni. Held ÍBV verði of stór biti fyrir Stjörnuna í þessum leik og Stjarnan mun því sitja áfram á botni deildinnar með 1 stig eftir laugardaginn.

8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top