Elís Þór Aðalsteinsson (
Elís Þór Aðalsteinsson sneri aftur á völlinn og lék með ÍBV í sigri liðsins gegn Selfossi í 16.umferð Olís-deildar karla á miðvikudagskvöldið. Elís Þór var markahæsti leikmaður Olís-deildar karla þegar hann varð fyrir því óláni að ristarbrotna á æfingu með U20 ára landsliði Íslands í upphafi nóvember mánaðar. Elís lék þar af leiðandi ekkert meira með ÍBV fyrir áramót en nú er hann kominn aftur á völlinn. Elís skoraði fjögur mörk úr fimm skotum í 12 marka sigri ÍBV gegn Selfossi 40-28 en ÍBV heimsækir topplið Hauka í 17.umferðinni á sunnudaginn en sá leikur hefst klukkan 16:00. Það eru virkilega jákvæð tíðindi fyrir Eyjamenn að Elís Þór sé kominn aftur en hann hafi leikið frábærlega fyrir ÍBV-liðið áður en hann meiddist í byrjun nóvember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.