Heil umferð í Grill 66 deild karla um helgina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Grill 66 deild karla fór aftur af stað eftir góða pásu síðastliðna helgi með tveimur leikjum sem frestaðir voru fyrir áramót. Fyrsta heila umferð ársins fer fram í Grill66-deildinni um helgina en fimm leikir fara fram í kvöld.

Víkingur er á toppi deildarinnar með 26 stig jöfn mörg stig og Grótta en með betri innbyrðis stöðu milli liðanna. Sjö umferðir eru eftir af deildinni og mikil spenna er í toppbaráttunni milli þessara liða en Gróttumenn bíða sennilega og vona eftir því að Víkingar misstígi sig.

Í kvöld eru eftirfarandi leikir:

Valur - HBH kl. 18:00
Haukar 2 - Grótta kl. 19:00
Hvíti Riddarinn - Fjölnir kl. 19:30
Selfoss 2 - Fram 2 kl. 19:30
Víkingur - ÍH kl. 20:15

Umferðin klárast svo á sunnudaginn með leik Harðar og HK 2 á Ísafirði kl. 17:00

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top