
Ísak Óli Eggertsson (Emma Elísa Jónsdóttir)
Grill 66 deild karla fór aftur af stað eftir góða pásu síðastliðna helgi með tveimur leikjum sem frestaðir voru fyrir áramót. Fyrsta heila umferð ársins fer fram í Grill66-deildinni um helgina en fimm leikir fara fram í kvöld. Víkingur er á toppi deildarinnar með 26 stig jöfn mörg stig og Grótta en með betri innbyrðis stöðu milli liðanna. Sjö umferðir eru eftir af deildinni og mikil spenna er í toppbaráttunni milli þessara liða en Gróttumenn bíða sennilega og vona eftir því að Víkingar misstígi sig. Í kvöld eru eftirfarandi leikir: Valur - HBH kl. 18:00 Umferðin klárast svo á sunnudaginn með leik Harðar og HK 2 á Ísafirði kl. 17:00
Haukar 2 - Grótta kl. 19:00
Hvíti Riddarinn - Fjölnir kl. 19:30
Selfoss 2 - Fram 2 kl. 19:30
Víkingur - ÍH kl. 20:15

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.