
Pauli Jacobsen (HØJ Elite)
Nýliðarnir í dönsku úrvalsdeildinni, HØJ Elite hafa tekið þá ákvörðun að segja upp samningi sínum við þjálfara liðsins þá, Stian Tønnesen og aðstoðarþjálfarann Patrik Liljestrand. Félagið greindi frá ákvörðuninni í gærkvöldi. Ákvörðunin var tekin daginn eftir 15 marka tap liðsins gegn GOG í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar eftir EM-pásuna en GOG vann leikinn 37-22. Það er sennilega hægt að velta fyrir sér tímasetningunni, fyrst þjálfarnir hafi verið á hálum ís hvort ekki hafi verið skynsamlegra að láta þá fara í janúar og nýr þjálfari hafi haft tíma í janúar til að koma sér inn í hlutina. ,,Við þökkum Stian og Patrik fyrir þeirra framlag og þá miklu vinnu sem þeir hafa lagt í HØJ Elite. Það er aldrei auðveld ákvörðun að skipta um þjálfarateymi, en sem félag berum við ábyrgð á að grípa til þeirra aðgerða sem við teljum nauðsynlegar til að ná sem bestum árangri fyrir liðið," sagði Lars Vinther, framkvæmdastjóri HØJ Elite. HØJ Elite er sem stendur í níunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og fara að öllum líkindum í umspil um laust sæti í deildinni. Félagið er engir venjulegir nýliðar en með liðinu leika reynslu miklir leikmenn á borð við, Hampus Wanne, Michael Damgaard, Linus Arnesson og Hans Lindberg. Þá hefur félagið samið við Jannick Green, danska landsliðsmanninn Lasse Andersson, sænska landsliðsmanninn, Axel Månsson og færeyska landsliðsinsmanninn, Ísak Vedelsbol fyrir næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.