Guðjón Baldur Ómarsson (Eyjólfur Garðarsson)
Guðjón Baldur Ómarsson er kominn aftur heim og lék með Selfossi í desember og aftur í fyrstu umferðinni eftir áramót í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöldið. Í viðtali við Handkastið fyrir tímabilið gerði hann ekki ráð fyrir því að spila með nýliðum Selfoss í Olís-deildinni á þessu tímabil en það hefur greinilega breyst því Guðjón Baldur lék með Selfossi í Olís-deildinni í desember og skoraði meðal annars þrjú mörk úr fjórum skotum í tapi Selfoss gegn ÍBV í vikunni. Guðjón Baldur sem er uppalinn á Selfossi var hluti af liði Selfoss sem bæði féll úr Olís-deildinni tímabilið 2023/2024 og vann sér sæti aftur í deildinni á síðustu leiktíð. Selfoss er með 9 stig í Olís-deild karla og fer í Garðabæinn á sunnudaginn og mætir þar Stjörnunni i 17.umferð deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.