Zvonimir Srna (Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)
Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Það eru því einungis 13 laus sæti á heimsmeistaramótið en dregið var í umspilsleiki fyrir Evrópuþjóðirnar um síðustu helgi. Þrettán sæti eru enn laus. Tíu lið frá Evrópu eiga enn eftir að bætast við. Eitt sæti rennur til Norður-Ameríku og Karíbahafsins. Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur síðan tvö "Wild card" til að velja inn á mótið. Sex efstu liðin á Evrópumótinu sem lauk um síðustu helgi tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu. Þjóðverjar sem gestgjafar, Danir sem Evrópumeistarar og síðan voru fjögur önnur laus sæti í gegnum Evrópukeppnina. Þar sem bæði Danmörk og Þýskaland voru meðal fjögurra efstu þjóða á Evrópumótinu fengu þjóðirnar sem enduðu í 3.-6. sæti farseðil á heimsmeistaramótið. Dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní á Hofbräuhaus í München. Íslenskir stuðningsmenn á Evrópumótinu í Þýskalandi 2024 muna eflaust eftir stemningunni á Hofbräuhaus í München. Leikið verður í sex borgum á heimsmeistaramótinu, München, Kiel, Hannover, Stuttgart, Magdeburg og Köln en 8-liða úrslit, undanúrslit og leikirnir um sæti fer fram í Köln síðustu vikuna í janúar. Eftirtaldar þjóðir hafa tryggt sér farseðla á HM. Dregið var í umspil HM fyrir Evrópu um síðustu helgi: Tékkland – Frakkland Fyrri umferð umspilsins verður 13. og 14. maí og seinni leikirnir fara fram 16. og 17. maí.
Evrópa: Þýskaland, Danmörk, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð.
Afríka: Egyptaland, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Alsír.
Asía: Barein, Katar, Kúveit, Japan.
Suður- og mið Ameríka: Argentína, Brasilía, Chile, Úrúgvæ.
Sviss – Ítalía
Úkraína eða Slóvakía – Norður-Makedónía
Bosnía eða Kósovó – Færeyjar
Austurríki – Pólland eða Lettland
Spánn – Georgía eða Ísrael
Grikkland eða Belgía – Holland
Noregur – Tyrkland eða Rúmenía
Finnland eða Svartfjallaland – Slóvenía
Serbía eða Litáen – Ungverjaland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.