Dika Mem (Sina Schuldt /AFP)
Fyrirliði Barcelona, franski landsliðsmaðurinn Dika Sem verður frá keppni næstu 4-6 vikurnar og missir meðal annars af bikarúrslitaleik Barcelona gegn Valladolid í dag sem fram fer á Gran Canaria. Dika Mem fór meiddur af velli í undanúrslitum spænska bikarsins í gær er Barcelona vann 37-31 en spænska félagið sendi frá sér tilkynningu eftir leik þess efnis að Dika Sem væri að glíma við meiðsli aftan í læri sem myndu halda honum frá æfingum og keppni í 4-6 vikur. Dika Mem kom lítið við sögu í fyrir hálfleiknum en í seinni hálfleik sást til hans á varamannabekknum með kælingu aftan í læri. Fyrir utan það að Dika Mem missi af bikarúrslitaleiknum í dag þá er ljóst að hann mun missa af mikilvægum leikjum liðsins í Meistaradeildinni en liðið stendur vel af vígi í B-riðlinum með 18 stig, sex stigum meira en Wisla Plock sem er í 3.sæti riðilsins. Fjórar umferðir eru eftir af riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem fer aftur af stað miðvikudaginn 18. febrúar og verður síðan leikinn
Þetta þýðir að hann mun líklega missa af síðustu leikjunum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, þar á meðal mikilvæga leiknum gegn Magdeburg í byrjun mars. Hins vegar er Barcelona þegar sterkt í riðlinum og er nálægt því að komast beint í átta liða úrslit, sem dregur úr íþróttaálagi á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.