Oddur Gretarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Þór fengu FH í heimsókn til sín í dag fyrir norðan í 17.umferð Olís deildar karla. Það mátti ekki sjá að liðin væru á sitthvorum enda töflunnar í dag en liðin voru jöfn nánast allan fyrri hálfleikinn og var Nikola Radovanovic stór ástæða fyrir því en hann var frábær í marki Þórs. Staðan í hálfleik var 12-13 gestunum frá Hafnarfirði í vil. Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik þar sem liðin skiptust á að hafa forystu og var staðan jöfn 19-19 þegar 12 mínútur voru eftir af leiknum. Þá sýndu FH styrk sinn og náðu fjögurra marka forskoti 20-24. Þeir héldu því forskoti út leikinn og unnu að lokum fimm marka sigur, 21-26. Þórður Tandri Ágústsson var markahæstur hjá Þór með 4 mörk en hjá FH var Garðar Ingi Sindrason frábær með 10 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.