Hannes Pétur samningsbundinn Gróttu til 2028
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Markvörðurinn Hannes Pétur Hauksson hefur framlengt samning sinn við Gróttu til ársins 2028.

Hannes er 19 ára gamall og kemur úr sterkum árgang sem varð til að mynda bikarmeistari í fyrra og lenti í 2.sæti Íslandsmótsins eftir dramatískan úrslitaleik. Hannes hefur leikið 18 leiki í vetur og átt fínar frammistöður með liði Gróttu sem situr í 2. sæti deildarinnar þegar þetta er ritað.

Einnig hefur Hannes verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár og lék hann sína fyrstu landsleiki með 20 ára landsliðinu gegn A-landsliði Grænlands síðastliðið haust.

Gaman verður að fylgjast með framvinduna hjá þessum efnilega markmanni á næstu árum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top