Myndi aldrei afskrifa Framarana
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dagur Fannar Möller 1 (Egill Bjarni Friðjónsson)

Fram vann fjögurra marka sigur á Aftureldingu í Lambhagahöllinni í 16.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið, 30-26.

Rætt var um sigurinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins sem er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Fram verður í eldlínunni í dag þegar liðið heimsækir KA í KA-heimilið klukkan 17:00 í lokaleik 17.umferðar Olís-deildar karla.

,,Frábær sigur hjá Fram sem er að tengja tvo sigurleiki í röð í deildinni eftir að hafa unnið Hauka í lokaumferðinni fyrir jól. Framarnir eru heldur betur að verða fullskipaðir og með mikla breidd. Þeir eru orðnir vel mannaðir og massaðir og klára þennan leik nokkuð sannfærandi," sagði Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi Handkastsins áður en Stymmi klippari tók til máls.

,,Einar hafði smá áhyggjur af því fyrir leik að hann væri kannski ekki búinn að ná að slípa liðið nægilega vel saman og Viktor væri að fara spila með einhverjum leikmönnum í fyrsta skipti. En það kom ekki að sök og Breki Hrafn var frábær í markinu.  Framarnir verða helvítis unit þegar við komum inn í vorið. Það eru bara sex umferðir eftir,” sagði Stymmi klippari.

Kristinn Björgúlfsson sem var gestur Handkastsins tók undir þau orð og segir Fram vera líklega til að verða Íslandsmeistara annað árið í röð.

,,Einar hefur sýnt það í gegnum tíðina að hann er góður í úrslitakeppninni með fullskipað lið. Ég myndi aldrei afskrifa Framarana,” sagði Kristinn Björgúlfsson sem var gestur í Handkastinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top