Ágúst Elí hetja KA í mikilvægum sigri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Logi Gautason ((Egill Bjarni Friðjónsson)

KA vann gríðarlega mikilvægan sigur á Fram í 17.umferð Olís-deildar karla í KA-heimilinu í dag en lokatölur 32-27 KA í vil en KA var meira og minna yfir í leiknum allan leikinn.

Eftir hæga byrjun stimplaði Ágúst Elí Björgvinsson sig heldur betur inn í leikinn í sínum fyrsta heimaleik fyrir KA eftir komu sína þangað fyrir áramót og varði 17 skot, tæplega 40% markvarsla hjá Ágústi í leiknum.

Einungis tveimur stigum munaði á liðunum fyrir umferðinni og því var þetta gríðarlega mikilvægur sigur fyrir KA en Fram hefði getað jafnað KA að stigum með sigri í dag. Með sigrinum fer KA í 22 stig og er einungis fjórum stigum frá toppliði Vals í deildinni þegar fimm umferðir eru eftir.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var sem fyrr markahæstur í liði KA í leiknum með átta mörk og Morten Boe Linder og Logi Gautason komu næstir með fimm mörk hvor. Hjá Fram var Dánjal Ragnarsson markahæstur með átta mörk en Viktor Sigurðsson kom næstur með fimm mörk.

Framarar voru sjálfum sér verstir í seinni hálfleik en KA bauð þeim oft á tíðum upp í dans sem Framarar virtust ekki hafa áhuga á. Klaufalegar brottvísanir og mistök sóknarlega einkenndu leik Fram í seinni hálfleik sem hjálpuðu KA að sigla stigunum heim.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top