Róbert Sigurðarson (Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net)
Róbert Sigurðarson varnar- og línumaður ÍBV í Olís-deild karla sem framlengdi samningi sínum við félagið á dögunum er að glíma við meiðsli og var ekki með ÍBV liðinu í öruggum sigri liðsins gegn Selfossi í fyrsta leik liðanna á nýju ári í Olís-deildinni. Róbert sagði í samtali við Handkastið að hann væri að glíma við bólgur í hné en segir að þetta líti betur út með hverjum deginum og það styttist í að hann komi aftur inn á völlinn. Aðspurður hvenær Eyjamenn gætu gert ráð fyrir að sjá hann aftur á vellinum sagði Róbert að það væri erfitt að segja til um það. ,,Við þurfum að bíða og sjá, hvernig gengur á æfingum næstu daga,” sagði Róbert í samtali við Handkastið. Róbert framlengdi samningi sínum við ÍBV til sumarsins 2028 en kærasta hans, Andrea Jacobsen gengur í raðir kvennaliðs ÍBV næsta sumar frá þýska liðinu Blomberg-Lippe. Handkastið greindi frá því fyrir helgi að Hinrik Hugi Heiðarsson, annar línumaður ÍBV væri á leið í aðgerð og myndi að öllum líkindum ekkert spila meira með ÍBV á tímabilinu. ÍBV heimsækir Hauka heim í 17.umferð Olís-deildarinnar í dag klukkan 16:00 en fimm leikir fara fram í Olís-deildinni í dag. Klukkan 15:30 hefst fyrsti leikur dagsins þegar Afturelding og Valur mætast.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.