Dagur Árni Heimisson (Sævar Jónasson)
Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals glímir við meiðsli og hefur ekki verið með Val í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Olís-deildinni eftir áramót. Dagur sagði í samtali við Handkastið að hann væri búinn að vera glíma við hnémeiðsli síðan, síðasta sumar er hann var í verkefni með unglingalandsliði Íslands. Hann vonast til að hann verði orðinn leikfær sem fyrst. ,,Hef verið að ströggla með þetta í vetur og vonaðist eftir að þetta myndi lagast, en það hefur ekki gert það. Vorum að reyna að álagsstýra þessu fyrir áramót og nýta hvíldina núna í janúar, en staðan á þessu var ekki orðin nægjanlega góð. Ég er í góðum höndum hjá toppsjúkraþjálfurum þannig ég hlakka til að spila 100% og vonandi verður það sem fyrst," sagði Dagur Árni í samtali við Handkastið. Valur mætir KA í næstu umferð, næstkomandi laugardag en Dagur Árni gekk einmitt í raðir Vals frá KA í sumar. Það verður áhugavert að sjá hvort Dagur Árni verði orðinn leikfær fyrir þann leik en um mikilvægan leik er að ræða fyrir bæði lið í Olís-deildinni en einungis fimm umferðir eru eftir af deildinni áður en úrslitakeppnin fer af stað. Valur vann Aftureldingu í gær nokkuð sannfærandi á útivelli með átta mörkum 27-35.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.