Daníel Ísak Gústafsson - Aðalsteinn Eyjólfsson (Víkingur)
Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Hrannar Guðmundsson ekki þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í Olís-deild karla á næsta ári. Samningur Hrannars við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði stjórn Stjörnunnar áhuga á að fá Aðalstein Eyjólfsson þjálfara Víkings til félagsins eftir tímabilið en Aðalsteinn er á sínu öðru tímabili með Víking í Grill66-deildarinnar en liðið er á toppi deildarinnar. Aðalsteinn nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum hjá Víkingi fyrr á tímabilinu. Hann hefur hinsvegar samkvæmt heimildum Handkastsins endurnýjað samning sinn við Víking og verður þar áfram næstu árin. Stjarnan er í 9.sæti Olís-deildar karla með tíu stig eftir 17 umferðir. Aðstoðarþjálfarinn Arnar Daði Arnarsson var vikið úr starfi á þorláksmessu á síðasta ári og bróðir Aðalsteins, Sverrir Eyjólfsson var ráðinn í hans starf. Stjarnan hefur tapað sex leikjum í röð í Olís-deildinni og virðast vera í frjálsu falli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.