Elmar Erlingsson (Nordhorn Lingen)
Elmar Erlingsson var ekki meðal markaskorara þegar Nordhorn-Lingen hélt sigurgöngu sinni í þýsku B-deildinni áfram en liðið sigraði Großwallstadt 34-36 á útivelli í kvöld. Um var að ræða fyrsta leik liðanna á nýju ári. Um var að ræða tíunda sigur Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni í röð en liðið er í 4.sæti deildarinnar með 27 stig þremur stigum á eftir toppliði Bietigheim en Elbflorenz er í 2.sæti með 28 stig og Potstad í því þriðja með jafn mörg stig og Nordhorn-Lingen. Frieder Bandlow var markahæstur í liði Nordhorn með 14 mörk úr 14 skotum og gaf fjórar stoðsendingar. Nordhorn-Lingen fær Eintracht Hagen í heimsókn í næstu umferð en sá leikur fer fram á sunnudaginn næstkomandi. Elmar skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við félagið á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.