Aron Rafn Eðvarðsson (Sævar Jónasson)
Markvörður Hauka, Aron Rafn Eðvarðsson hefur ekki verið í leikmannahópi Hauka í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir áramót. Haukar fengu Grétar Ara Guðjónsson til sín frá AEK í Grikklandi í janúar og hefur hann og Magnús Gunnar Karlsson myndað markvarðarpar Hauka í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir áramót. Samkvæmt heimildum Handkastsins fékk Aron Rafn skot í höfuðið á æfingu liðins í aðdraganda leiksins gegn Vals sem hefur haldið honum frá vellinum hingað til. Aron Rafn á langa sögu varðandi höfuðmeiðsli sem héldu honum frá vellinum í langan tíma en hann sneri aftur á völlinn í febrúar 2023 eftir árs fjarveru. Samkvæmt því sem Handkastið hefur heyrt, eru Haukar að gera sér vonir um að Aron verði orðinn klár fyrir bikarúrslitahelgina í lok febrúar en Haukar mæta þar grönnum sínum í FH í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Haukar töpuðu um helgina gegn ÍBV á heimavelli með einu marki en unnu Val á útivelli í leiknum þar á undan. Haukar fara í Garðabæinn í næstu umferð og mæta þar Stjörnunni á föstudagskvöldið klukkan 19:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.