Fékk skot í höfuðið og missti af síðasta leik
Egill Bjarni Friðjónsson)

Breki Hrafn Árnason markvörður Fram lék ekki með liðinu í tapinu gegn KA í 17.umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Breki Hrafn fékk skot í höfuðið í sigri Fram gegn Aftureldingu í leiknum á undan og gat af þeim sökum ekki leikið með Fram gegn KA í síðasta leik.

Þetta staðfesti Einar Jónsson þjálfari Fram í samtali við Handkastið.

Fram fer í heimsókn í Skógarselið næstkomandi föstudag og mætir þar ÍR í 18.umferð Olís-deildarinnar. Einar segir að staðan á Breka fyrir þann leik verði metin á fimmtudag og þá komi í ljós hvort Breki geti leikið gegn ÍR á föstudaginn.

Fram er í 7.sæti Olís-deildarinnar með 18 stig en þrjú stig er í næsta lið í töflunni, ÍBV sem eru í 6.sætinu. Fimm umferðir eru eftir af Olís-deildinni áður en úrslitakeppnin fer af stað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top