Símon Michael Guðjónsson (J.L.Long)
Vinstri hornamaður FH í Olís-deild karla, Símon Michael Guðjónsson verður klár í næsta leik eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum FH í deildinni eftir áramót. Þetta staðfesti Einar Andri Einarsson, aðstoðarþjálfari FH í samtali við Handkastið. Símon Michael missti af leik FH gegn uppeldisfélagi sínu HK í síðustu umferð sem FH vann með þremur mörkum og þá var hann einnig fjarverandi í sigri FH gegn nýliðum Þórs á sunnudaginn sem FH vann með fimm mörkum. Jakob Martin Ásgeirsson hefur leyst Símon Michael af í vinstra horninu í leikjunum báðum og skilað frá sér góðu dagsverki. Jakob Martin var markahæstur í sigrinum gegn HK með sjö mörk og skoraði síðan fjögur mörk gegn Þór. FH fær nýliða Selfoss í heimsókn á fimmtudaginn í 18.umferð Olís-deildarinnar og er gert ráð fyrir því að Símon Michael verði með í þeim leik. Einar Andri sagði í samtali við Handkastið að Símon hafi fengið högg á æfingu liðsins á dögunum sem hafa haldið honum frá keppni. FH er í 4.sæti Olís-deildarinnar með 23 stig, jafn mörg stig og Afturelding sem er í 3.sætinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.