Palicka laus allra mála hjá Kolstad – Á leið til Rúnars
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andreas Palicka (Beate Oma Dahle / NTB / AFP)

Norska félagið Kolstad og sænski markvörðurinn Andreas Palicka hafa komist að samkomulagi um Palicka sé laus allra mála hjá félaginu. Norska félagið tilkynnti þetta í fréttatilkynningu síðdegis í dag. Allt bendir til þess að Palicka gangi í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins, Wetzlar sem leikur undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar en farið síðan til þýsku meistarana í Fuchse Berlín næsta sumar.

,,Tími minn hjá Kolstad var öðruvísi en búist var við. Á sama tíma skil ég áskoranir félagsins og hef því lagt mitt af mörkum til lausnar sem er báðum aðilum fyrir bestu. Ég óska ​​Kolstad alls hins besta í framtíðinni," segir Andreas Palicka í fréttatilkynningunni.

Andreas Palicka gekk í raðir Kolstad fyrir tímabilið og fyllti þar skarð Torbjørn Bergerud. Samningur Palicka við Kolstad átti að gilda út næsta tímabil.

Samkvæmt TV 2 var Andreas Palicka launahæsti leikmaður Kolstad með 550.000 evrur í árslaun sem gera 6.800.000 á mánuði.

Palicka er annar leikmaðurinn sem yfirgefur Kostad eftir áramót því Simon Lyse yfirgaf félagið og gekk í raðir PSG hálfu ári áður en gert var ráð fyrir í fyrstu en hann hafði samið við PSG fyrr á tímabilinu frá og með næsta sumri.

Þrír Íslendingar eru að mála hjá Kolstad, þeir Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sigurjón Guðmundsson markvörður sem fær nú stærra hlutverk hjá liðinu eftir brotthvarf Palicka.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top