Gunnar Magnússon (Egill Bjarni Friðjónsson)
Stymmi klippari var lítið skemmt yfir frammistöðu Hauka í tapi liðsins gegn ÍBV í síðustu umferð Olís-deildar karla þar sem Dagur Arnarsson skoraði flautumark fyrir ÍBV sem tryggði þeim eins marks sigur í leiknum eftir að Haukar höfðu fengið tækifæri til að komast yfir í sókninni á undan, fyrst 7 á 5 og síðan 6 á 5. Grétar Ari Guðjónsson átti ekki góðan leik í marki Hauka en varði þrjú skot í sömu sókninni undir lok leiks. ,,Ég hélt að Grétar Ari væri að fara sigla þessu heim fyrir Haukana en Haukar eins og Jose Mourinho sagði þá virðast þeir vera “specialist in failure” - þeir eru snillingar í að klúðra þessu," sagði Stymmi klippari meðal annars. ,,Fullt props á ÍBV en ÍBV án Ísaks, Sigtryggs, Róberts og Hinriks Huga að mæta á Ásvelli eftir að Haukar eru nýbúnir að hnefa Val á þeirra eigin heimavelli með tíu mörkum og við talað þá upp til skýjanna. Fullt props á ÍBV en Haukar eru með fullmannað lið, þeir eiga bara að vinna þetta. Þetta er ömurlegt og týpískt Haukar, ef þeir hefðu unnið þennan leik þá ættu þeir bara FH eftir sem væri fyrirfram eini 50/50 leikur fyrir Hauka til að verða deildarmeistarar.” Haukar höfðu unnið Val í umferðinni á undan og komist upp í toppsætið í deildinni með sigrinum en hafa nú misst toppsætið aftur í hendur Vals eftir tapið gegn ÍBV. Haukar mæta Stjörnunni í næstu umferð en þeir eiga siðan FH, Þór, Selfoss og HK eftir af tímabilinu. ,,Og það að verða deildarmeistari á þessu tímabili er ekkert eðlilega mikilvægt því þetta verður Selfoss, HK eða Þór sem endar í 8.sætinu. Ef þú endar í 2.sætinu þá ertu bara að fara mæta Fram í 8-liða úrslitum." Valur á KA, ÍR, Fram, HK og ÍBV eftir af tímabilinu en það verður spennandi að fylgjast með toppbaráttunni sem eftir er af Olís-deildinni því eins og Klippari benti á, er til mikils að vinna að vinna deildina og fá 8.sætið í 8-liða úrslitunum sem virðist vera töluvert lakari heldur en liðin í 6.-7.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.