Guðjón Valur Sigurðsson ((Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)
Þýska úrvalsdeildin fer af stað aftur eftir langa pásu í dag en fimm leikir eru á dagskrá í dag. Einn Íslendingaslagur fer fram þegar Einar Þorsteinn Ólafsson og félagar hans í Hamburg fá Blæ Hinriksson og félaga í Leipzig í heimsókn. Þrjú önnur Íslendingalið verða í eldlínunni, Göppingen fær Minden í heimsókn, Erlangen mætir Hannover-Burgdorf og Gummersbach mætir Flensburg í stórleik dagsins. Mathias Gidsel er lang markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með 185 mörk en næstur honum kemur Kai Hafner leikmaður Stuttgart með 151 mark. Ómar Ingi Magnússon kemur næstur með 140 mörk og Færeyingurinn, Elias Ellefsen á Skipagötu er 4. markahæstur með 135. Þessir leikmenn bera af í markaskorun deildarinnar. Haukur Þrastarson er næst markahæsti Íslendingurinn í deildinni með 100 mörk og Viggó Kristjánsson kemur næstur með 96 mörk en Viggó hefur misst af nokkrum leikjum fyrir áramót bæði vegna veikinda og meiðsla. Magdeburg er á toppi deildarinnar eftir 19 leiki með 36 stig. Fimm stigum meira en Flensburg sem er í 2.sæti. Lemgo er spútnik lið tímabilsins í 3.sætinu með 30 stig, jafn mörg stig og Fuchse Berlín sem hefur leikið 20 leiki. Kiel er síðan í 5.sæti með 28 stig og Gummersbach í 6.sætinu með 25 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.