Orfeus - Víðir í Garði (Víðir)
Það vakti þónokkra athygli stuttu fyrir lok félagaskiptagluggans þegar tilkynnt var að Grikkinn Orfeus Andreou sem var aðal máttarstólpi Víðis í Garði í C-deildinni var búinn að hafa félagaskipti yfir í HK í Olís-deild karla. Raunar var Orfeus ekki bara aðal máttarstólpi Víðis heldur endurvakti hann einnig handboltadeild Víðis fyrir nokkrum árum. Áður en hann kom til Íslands spilaði hann í pólsku úrvalsdeildinni með Śląsk Wrocław og Piotrkowianin.
Handkastið heyrði aðeins í Orfeus og spurði hann afhverju stæði á þessum félagaskiptum.
,,Ég var orðinn eilítið ósáttur við ákveðin mál hjá Víði, svo ég ákvað að leita að nýju félagi til að halda áfram að þróa mig sem leikmaður."
,,Fyrst beið ég eftir svari frá Þór Akureyri til að fá að fara norður og fá að spreyta mig á reynslu þar. En svo nokkrum dögum áður en félagaskiptaglugginn lokaði var ég að tala við Ólaf Víði (mótastjóra HSÍ og yfirþjálfara HK) um daginn og veginn og í samtali okkar sagði ég honum að ég væri að leita að nýju liði til að æfa og spila með. Hann tjáði mér það að HK vantaði örfhentan leikmann í æfinga- og leikmannahóp sinn," sagði Grikkinn sem sagði að í kjölfarið hafi þjálfarateymi HK, Halldór Jóhann Sigfússon og Vilhelm Gauti Bergsveinsson haft samband við sig.
,,Og í HK er ég kominn núna."
Það verður áhugavert að fylgjast framgöngu Orfeusar Andreou með HK liðinu það sem eftir lifir tímabils. Í gær á móti ÍR kom hann inn á og setti 4 mörk svo það er ljóst að hann kemur með eitthvað að borðinu fyrir HK liðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.