Yrði stórt klúður ef Víkingur klúðrar þessu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ásgeir Snær Vignisson - Víkingur (Emma Elísa Jónsdóttir)

Fimm leikir fara fram í Grill66-deild karla í kvöld þegar 17.umferðin hefst í deildinni en spilaðar eru 22 umferðir í Grill66-deildinni líkt og í Olís-deildinni.

Víkingur og Grótta eru jöfn að stigum á toppi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni en Víkingur stendur betur að vígi vegna betri úrslita í innbyrðisviðureignum liðanna á tímabilinu. Rætt var um toppbaráttuna í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Víkingarnir þurfa bara að treysta á sjálfan sig. Það eru fimm umferðir eftir og þeir eiga eftir að mæta Fram 2, Hörð, HK 2, Selfoss 2 og Hvíta riddarann. Sjáum við eitthvað bananahýði þarna?” velti Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins fyrir sér og spurði Stemma klippara og Ásgeir Jónsson.

Ásgeir benti á að hann gæti ímyndað sér að það yrði erfitt fyrir Víking að mæta Herði en Arnar Daði benti á að það væri á heimavelli Víkings, Safamýrinni.

,,Ég var að vonast eftir því að þeir ættu eftir Val 2. Það hefði líklega verið eina liðið sem gæti strítt þeim. Ég sé Alla Eyjólfs og hans stráka ekki í basli með þessi fimm lið.”

,,Það yrði allavegana stórt klúður ef Víkingur klúðrar þessu, úr því sem komið er," bætti Arnar Daði við.

Víkingur heimsækir Fram 2 í kvöld klukkan 20:00 en Gróta fær Val 2 í heimsókn klukkan 19:00.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top