Tim N’Guessan (Gerard Franco/DAX Images/NurPhoto / AFP)
Barcalona var ekki nema einu marki frá því að skrá sig í sögubækurnar í spænsku úrvalsdeildinni ern liðið vann Horneo Eón Alicante í gær í spænsku úrvalsdeildinni 51-32 en félagið jafnaði eigið markamet í deildinni. Barcelona vantaði hinsvegar eitt mark til að jafna markamet sem Atlético de Madrid setti árið 2011 þegar liðið skoraði 52 mörk í 52-27 sigri á Academia Octavio í spænsku úrvalsdeildinni. Þetta er í þriðja sinn sem Barcelona skorar 51 mark í ASOBAL-deildinni en liðið gerði það einnig árið 2015 gegn Puerto Sagunto og aftur árið 2024. Dika Mem er frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla og þá voru Emil Nielsen, Luis Frade, Ian Barrufet og Domen Makuc hvíldir í leiknum. Barcelona er efst í deildinni með 16 sigra í 16 leikjum og 32 stig. Næsti leikur er útileikur gegn Recoletas Atlético Valladolid áður en Meistaradeildin heldur áfram en liðið mætir Pick Szeged í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar á nýju ári.
Staðan í hálfleik í leiknum í gær var 27-14. Það sem gerir afrek Barcelona enn ótrúlegra í gær er að ekki var nema tveir dagar síðan liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn á Spáni og Barcelona var án nokkurra lykilmanna í leiknum.
Jonathan Carlsbogard og Manuel Ortega skoruðu átta mörk hvor, Dani Fernández og Miguel Martín fimm, en Aleix Gómez, Antonio Bazán og Petar Cikusa skoruðu allir fjögur mörk í leiknum. Í markinu varði Viktor Gísli Hallgrímsson 10 skot í fyrri hálfleik, með 42% markvörslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.